Anton Smári Hrafnhildarson mætti Callum Humphreys á Golden Ticket 29 rétt í þessu og sigraði með tæknilegu rothöggi í fyrstu lotu.
Anton var að berjast sinn þriðja MMA bardaga en hann hafði tapað fyrri tveimur og var greinilega staðráðinn í að sækja sinn fyrsta sigur í kvöld. Hann tók miðjuna snemma og pressaði stöðugt á andstæðinginn, var mjög yfirvegaður en kastaði út höggunum sínum af miklum krafti. Það sást að Humphreys átti erfitt með að þola þungan í höggum Antons sem sló hann að lokum niður og kláraði með höggum í gólfinu.
Á eftir kemur svo að liðsfélaga hans Steinari Bergssyni sem mætir Nathaniel Wiredu í co-main bardaganum á Golden Ticket 29





