Það er nóg um að vera í bardagaheiminum í dag. Auk fjölda Íslendinga sem eru að berjast útum alla Evrópu bæði í hnefaleikum og jiu-jitsu verður sannkölluð bardagaveisla í Mini Garðinum þar sem bæði UFC París og Golden Ticket 29 verða í beinni útsendingu.
Það eru þeir Steinar Bergsson og Anton Smári Hrafnhildarson sem berjast fyrir hönd Mjölnis Golden Ticket í Wolverhampton, Englandi en þeir hafa báðir litið mjög vel út í undirbúningi bardaganna og eru eflaust ákveðnir í að bæta upp fyrir töpin frá síðustu ferð. Steinar var mjög óheppinn og tapaði á klofinni dómaraákvörðun gegn Jack Rawlins í bardaga sem flestir hér heima voru sammála um að hann hafi unnið. Afdrifaríkar ákvarðanir dómarans í hringnum höfðu einnig áhrif á gang mála. Anton átti rosalega flotta frammistöðu seinast gegn Shyrron Burke og átti tvær gríðarlega sterkar lotur þar sem hann andstæðingur hans sá ekki til sólar. Eitt högg í þriðju lotu breytti þó öllu og Anton þurfti að sætta sig við sárt tap.
Eins og alltaf þegar Íslendingar berjast verður frír bjór í boði ef annar hvor sigrar á rothöggi eða uppgjafartaki.
Golden Ticket útsendingin hefst kl. 17:30 en UFC prelims byrja kl. 16:00.






