Kolbeinn Kristinsson mætir Venesúelanum Pedro Martinez í átta lotu bardaga í kvöld.
Streymið byrjar klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Hægt verður að horfa á bardagann í MiniGarðinum og á PPV streymi. Sjá hlekkinn hér fyrir neðan. ATH. Það þarf að búa til aðgang til að komast að streyminu. Ef áhorfendur lenda í veseni við að gera aðgang þar sem síðan samþykkir ekki alltaf erlend heimilisföng er hægt að nota heimilisfangið að hotelinu okkar.
HLEKKUR Á STREYMIÐ – NÚ REYNIR Á FINNSKUNA!
Uusikatu 26, 90100 Oulu, Finland
Eftir að þið gerið aðgang mun síðan senda staðfestingar póst. Sá póstur gæti farið í ruslpóstinn ykkar.
Einnig verður hægt að veðja á bardagann inn á veðbanka Íslensku þjóðarinnar.
Kolli og Pedro munu líklega stiga inn í hringinn í kringum 19:00 að íslenskum tíma en það er háð því hvernig fyrri bardagar þróast.






