Red corner MMA tilkynnti um það rétt í þessu að Arman Tsarukyan hafi orðið fyrir meiðslum í baki og hafa dregið sig úr titilbardaganum gegn Islam Makhachev á UFC 311. Leit stendur víst yfir að staðgengli fyrir hann.
Það stóð til að Arman Tsarukyan fengi annað tækifæri gegn Islam Makhachev í bardaga upp á léttvigtarbeltið á UFC 311 um helgina. Arman mætti Islam í UFC frumraun sinni árið 2019 sem endaði með einróma dómaraákvörðun Islam í vil. Síðan þá hefur Arman unnið 9 bardaga og aðeins tapað einum. Arman sendi sterk skilaboð til annarra manna í þyngdarflokknum þegar hann sigraði fyrrverandi léttvigarmeistarann Charles Oliveira á UFC 300 í apríl í fyrra en bardaginn þeirra var hörku viðureign sem endaði á klofinni dómaraákvörðun.
Leit stendur yfir af staðgengli fyrir Arman en fyrirvarinn er nánast enginn. En ekki er öll von úti, annað eins hefur nú gerst eins og þegar Dan Ige tók bardaga með aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara gegn Diego Lopes á UFC 303. Alexander Volkanovski hefur líklega fengið símtal en hann mætti Islam síðast með 10 daga fyrirvara þegar Charles Oliveira dróg sig úr keppni á 294. Islam kláraði þá Volkanovski í 1. lotu með hásparki í höfuðið og hamarshnefum sem fylgdu eftir.

Það verður að koma í ljós hvað verður úr málum en MMA Fréttir munu að sjálfsögðu vera með puttann á púlsinum og færa ykkur fréttirnar um leið og þær berast!






