James Krause átti að mæta Ross Pearson á UFC bardagakvöldinu í Belfast í næsta mánuði. Hann neyðist til að feta í fótspor Gunnars og getur ekki barist vegna meiðsla.
Bardagi Krause og Pearson var einn af þeim betri í Belfast. Sem betur fer fær Pearson nýjan andstæðing en Skotinn Stevie Ray kemur í stað Bandaríkjamannsins Krause.
Þetta er í annað sinn sem bardagi Krause og Pearson er felldur niður en þeir áttu að mætast í sumar. Þá meiddist Krause rétt eins og nú og bað hann Pearson innilegrar afsökunar á Instagram í dag.
Ross Pearson mun halda sínu striki en þetta verður fimmti bardaginn hans á þessu ári.