Efnilegi millivigtarbardagamaðurinn Bo Nickal hefur fengið nýjan bardaga staðfestan frá því að hann tapaði fyrir Reinier de Ridder fyrr á árinu. Hann mætir aftur í búrið á UFC 322 í New York þann 15. nóvember.
Þrítífaldi NCAA glímumeistarinn Nickal fær sterkan andstæðing í Rodolfo Vieira, sem er margfaldur heimsmeistari í glímu. Vieira vann meðal annars gull á ADCC árið 2015. Hann hefur unnið þrjá af síðustu fjórum bardögum sínum í UFC og ætlar að bæta við þann árangur þegar hann mætir Nickal í nóvember.
Nickal kom inn í UFC sem eitt heitasta nýja nafnið eftir aðeins þrjá atvinnubardaga. Hann byrjaði á fjórum sigrum í röð en fékk svo sitt fyrsta tap þegar hann var rotaður af de Ridder í maí.
Fleiri bardagar hafa verið staðfestir þetta kvöld. Roman Kopylov snýr aftur í búrið gegn Gregory Rodrigues í öðrum millivigtarbardaga.
Einnig hefur Baisangur Susurkaev, sem vakti mikla athygli í Dana White’s Contender Series, nýjan bardaga bókaðan. Hann mætir Eric McConico í millivigt. Susurkaev fékk UFC samning eftir sigur á Contender Series og sigraði síðan Eric Nolan með uppgjafartaki á UFC 319 í Chicago.
UFC 322 verður stór kvöld þar sem tveir titilbardagar fara fram:
Jack Della Maddalena verndar veltivigtarbelt sitt gegn fyrrum léttvigtarmeistara Islam Makhachev, sem stígur upp í 170 pund
Valentina Shevchenko ver flugvigtarbelt sitt gegn Zhang Weili, sem leggur til hliðar strávigtarbeltið til að reyna við titilinn í 125 pundum.





