Hekla María Friðriksdóttir mætir Nicole Vernon á UK Fighting Championship 40 sem haldið verður í Preston um helgina. Þetta er annar MMA bardaginn hennar Heklu sem hefur sýnt svakalega flotta takta í búrinu og á glímudýnunni á alþjóðlegum vettvangi.
Bardaginn verður sýndur í Minigarðinum kl. 14:00
Hekla Friðriksdóttir barðist sinn fyrsta bardaga á Caged Steel 39 í mars fyrr á árinu. Þar sigraði Hekla hana Paulette Spencer í fyrstu lotu með armbar eftir. Hekla hefur haldið áfram að sækja sér keppnisreynslu, síðast í Póllandi, þar sem hún sótti silfurverðlaun á ADCC Open.
Í dag mætir Hekla hins vegar heimakomunni Nicole Vernon sem berst sinn fyrsta MMA bardaga gegn Heklu. Þær eru því báðar að taka sín fyrstu skref í MMA en Nicole á feril í Kickboxi en það er óljóst eins og er hversu mikið hún hefur barist. Það væri því vel við hæfi að kalla þetta Striker vd. Grappler-bardaga þar sem Hekla mun alltaf geta leitað í glímuna ef henni gengur illa standandi.
MMA Fréttir gerði Leiðina að búrinu um Heklu og bardagann hennar gegn Nicole.
En einnig er hægt að kaupa PPV hér





