HomeErlentBurns gegn Malott – reynsla mætir nýrri kynslóð

Burns gegn Malott – reynsla mætir nýrri kynslóð

UFC Fight Night: Burns vs. Malott fer fram í kvöld þar sem fyrrum titiláskorandinn Gilbert Burns mætir kanadíska uppgangsnafninu Mike Malott í veltivigtarbardaga sem gæti haft mikil áhrif á stöðuna í deildinni. Viðburðurinn fer fram í Canada Life Centre í Winnipeg og markar fyrstu heimsókn UFC þangað síðan 2017.

Þessi bardagi snýst um tvær mjög ólíkar sögur. Burns kemur inn sem einn reyndasti bardagamaður deildarinnar og maður sem hefur barist við bestu menn heims og tókst meira að segja að kreista út sigur gegn Gunnari Nelson á sínum tíma. Hann hefur áður farið í titilbardaga og deilt búri með nöfnum á borð við Kamaru Usman, Belal Muhammad og fleiri toppmönnum. Nú stendur hann þó á mikilvægum tímamótum eftir erfiðan kafla þar sem hann hefur tapað fjórum bardögum í röð. Burns hefur sjálfur viðurkennt að úrslitin þurfi að batna og segist hann enn hafa hungur til að keppa á hæsta stigi.

Á móti honum stendur Mike Malott, sem margir sjá sem næsta kanadíska kyndilberann í UFC. Malott hefur unnið níu af síðustu tíu bardögum sínum og kemur inn með gott sjálfstraust eftir sterkan sigur á Kevin Holland síðast. Núna fær Mallot stærsta tækifæri ferilsins – sinn fyrsta aðalbardaga hjá UFC og það á heimavelli fyrir framan kanadíska áhorfendur.

Veðbanki íslensku þjóðarinnar hefur sett stuðla og telur Mallot töluvert líklegri til sigurs.

Spennan hefur þegar magnast í Winnipeg. Við opinbera vigtun var hávær stemning þegar Burns fékk baul frá heimafólki eftir að hafa sagt að hann ætlaði að „smasha strákinn ykkar“. Malott svaraði með tilfinningaþrungnum orðum og sagðist stoltur að fá aðalbardaga á heimavelli. Hann er aðeins þriðji Kanadamaðurinn til að leiða UFC kvöld í heimalandinu, á eftir Georges St-Pierre og Rory MacDonald.

Taktískt er þetta afar áhugaverð viðureign. Burns er þekktur fyrir hættulega jiu-jitsu takta, mikla sprengikrafta og reynslu í stórum bardögum. Ef hann nær að hægja á tempóinu og draga Malott í glímubardaga gæti hann nýtt reynsluna sér í hag. Malott er hins vegar yngri, ferskari og líklegur til að reyna að halda hraðanum háum, nota höggin standandi og pressa Burns frá fyrstu mínútu.

Fyrir Burns gæti sigur endurvakið ferilinn og komið honum aftur inn í topp 10 umræðuna. Fyrir Malott gæti sigur undir svona stóru nafni opnað dyr að enn stærri bardögum og staðfest hann sem raunverulegan áskoranda í veltivigtinni.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið