Wednesday, May 8, 2024

Kolbeinn kominn með staðfestan titilbardaga!

Kolbeinn “Icebear” Kristinsson, oftast þekktur sem "Kolli", mun berjast upp á Baltic Boxing titilinn í Finnlandi 1. Júní. Það hefur legið í loftinu í dágóðan tíma að Kolli fái titilbardaga, en þónokkur bakslög hafa sett strik í reikninginn. Það stóð til að Kolli myndi berjast í maí en þá braut hann hægri hendina sína og varð það til þess að hann þurfti að sitja hjá. En núna er kominn nýr andstæðingur, dagsetning, staður og belti!

Svona var Íslandsmeistaramótið 2024

Íslandsmeistaramótið í Hnefaleikum var haldið á laugardaginn í húsakynum WCBA. Alls voru 9 bardagar á dagsskrá og var þar af einn bardagi upphitunarbardagi fyrir íslandsmeistara viðureigningar. Hægt er að sjá bardagana inn á Youtube rás Fimmtu Lotunnar, sem tók einnig viðtöl við sigurvegarana og ný krýnda íslandsmeistara.

Íslandsmeistaramótið í Hnefaleikum verður haldið um helgina

Það verður WCBA sem tekur að sér að halda Íslandsmeistaramótið í þetta skipti. Húsið opnar kl 12:00 og munu fyrstu viðureignirnar hefjast kl 13:00....