Það varð allt vitlaust áðan á blaðamannafundinum fyrir UFC 202. Flöskum var kastað á milli Conor og Nate Diaz og segist Conor aðeins hafa verið í sjálfsvörn.
Conor McGregor mætti hálftíma of seint á blaðamannafundinn áðan og fór það eflaust í taugarnar á Nate Diaz. Skömmu eftir að Conor lét sjá sig ákvað Nate að fara. Upp frá því hófst fáranleg atburðarrás þar sem flöskum var kastað á milli.
Conor kom óskaddaður úr blaðamannafundinum sem og allt hans lið.