Conor McGregor mun senda frá sér yfirlýsingu fljótlega. Þetta sagði hann á Twitter fyrir skömmu.
Ok no more games.
I am going to release a statement shortly.— Conor McGregor (@TheNotoriousMMA) April 21, 2016
Óhætt er að segja að gífurleg eftirvænting ríki eftir ummælum frá Conor McGregor. Írinn skemmtilegi hefur verið þögull sem gröfin síðan hann lýsti því yfir á Twitter að hann væri hættur síðasta þriðjudag.
Dana White: Conor gæti enn barist á UFC 200
Írinn er sem kunnugt er staddur á Íslandi við æfingar í Mjölni. Sama dag og hann tilkynnti að hann væri hættur lýsti Dana White því yfir að hann myndi ekki berjast á UFC 200. Ef McGregor myndi hins vegar hringja í hann og segjast ætla að koma til Las Vegas gæti hann barist á UFC 200.
*Uppfært*
Conor McGregor olli ekki vonbrigðum og sendi frá sér yfirlýsingu sem lesa má hér.