Að venju var hrikalega skemmtileg helgi að líða í bardagaheiminum. Íslandsmeistaramótið í Gi var haldið í Mjölni þar sem um 40 þátttakendur tóku þátt og var þar af einn meðlimur Fimmtu lotunnar sem kom, sá og tapaði með glæsibrag á mjög skemmtilegu móti. Við gerum upp mótið í fréttapakkanum ásamt King of the Ring þar sem Ronald Bjarki sótti gull fyrir okkur Íslendinga.
Það var flott UFC-kvöld í Kanada, Edmonton, um helgina þar sem Brandon Moreno snéri til baka og hreinlega lumbraði á týndum Amir Albazi. Við gerum upp allt kvöldið áður en við hitum snögglega upp fyrir næsta UFC-kvöld sem er jú ansi spennandi APEX-kvöld.