Þetta verður viðburðarík vika fyrir John Dodson. Á laugardaginn mætir hann Demetrious Johnson um fluguvigtartitilinn en í gær eignaðist hann sitt fyrsta barn.
Bardaginn á laugardaginn fer fram í Las Vegas á UFC 191 bardagakvöldinu. Dodson var því staddur í Las Vegas á mánudagskvöldið þegar hann fékk símtal. Kærastan var komin með hríðir og var dóttir Dodson á leið í heiminn.
Dodson flaug umsvifalaust til baka til Albuquerque til að vera viðstaddur fæðinguna. Dóttirin átti ekki að koma í heiminn fyrr en í næstu viku en stelpan var ekkert að láta bíða eftir sér. Dodson komst á spítalann í tæka tíð og var viðstaddur fæðinguna. Hann mun verja smá tíma í Albuquerque áður en hann heldur aftur til Vegas þar sem hann berst um titilinn.
UFC 191 fer fram á laugardaginn þar sem þeir Demetrious Johnson og John Dodson eigast við í aðalbardaga kvöldsins.
She’s here! At 245 am Delilah sees me — John Dodson III (@JohnDodsonMMA) September 1, 2015