spot_img
Friday, February 6, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeInnlentFimm Muay Thai keppendur frá Imperium berjast í Póllandi um helgina

Fimm Muay Thai keppendur frá Imperium berjast í Póllandi um helgina

Imperium Fightclub halda út til Póllands um helgina og senda fimm keppendur á Muay Thai mót í Varsjá. Viðburðurinn sem heitir Legenda er haldinn í Blue City Mall í Varsjá og keppt er í svokölluðu IFMA Muay Thai.

IFMA er alþjóðasamband og er viðurkennt of Ólympíusambandinu(IOC). Næsta skref hjá sambandinu er þáttaka á Ólympíuleikunum sjálfum. Innan IFMA er keppt eftir áhugamannareglum og keppt er í stuttbuxum og hlýrabol ásamt hlífðarbúnaði. Það eru þrír flokkar – A, B, C.

A. 3x3min lotur, hjálmur, þunnar legghlífar, 10oz hanskar, olnbogahlífar.
B. 3x2min lotur, hjálmur, vesti, þunnar legghlífar, 10onz hanskar, olbogahlífar.
C. 3x2min lotur, hjálmur, vesti, þunnar legghlífar, 10onz hanskar og engir olbogar né hné í andlit leyfð.

Þórður Bjarkar Arelíusson þjálfari Imperum og formaður Muay Thai Samband Íslands segir að íslenska sambandið muni sækja um aðild að IFMA og fylgja þeirra stefnu og reglugerð varðandi áhugamanna Muay Thai.

Á laugardaginn berjast Ýmir Friðgeirsson sem er að taka sinn 3. bardaga og keppir í B flokk, Mateusz Pytel sem er að taka sinn 6. bardaga og keppir í B flokki, Berglind Haraldsdóttir sem er að taka sinn fyrsta bardaga og keppir í C flokki, Karol Ruszkowski sem er að taka sinn fyrsta bardaga og keppi í C. flokki og Oliwia Janczuk sem er að taka sinn fyrsta bardaga og keppir í C. flokki.

spot_img
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið