HomeErlentMelissa Mullins grét á vigtinni

Melissa Mullins grét á vigtinni

Melissa Mullins var grátandi þegar hún steig á vigtina fyrir UFC London annað kvöld. Ástæðan kom svo í ljós seinna þegar andstæðingurinn hennar, Luana Carolina, steig á vigtina litlum 8 pundum eða um 4 kg yfir þyngdarmörkin. UFC hefur nýlega gefið út að bardaganum sé aflýst.

Mullins hefði komið inn í bardagann á 7 bardaga sigurgöngu en hún er aðeins með 2 töp á ferlinum og hefur á síðustu árum verið að byggja sig upp sem eitt af spennandi nöfnum í kvennadeildum UFC. Hún er þekkt fyrir sterka líkamlega nærveru í búrinu og árásargjarnan stíl sem getur sett andstæðinga undir mikla pressu frá fyrstu mínútu. En við Íslendingar munum kannski einnar helst eftir henni eftir að hún mætti Dammý á áhugamannaferlinum.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið