Hnefaleikafélag Kópavogs hélt til Finnlands nýlega á hnefaleikamótið Pirkka með fimm keppendur.
Fajer Ghazali U15 48 kg keppti sinn þriðja bardaga á móti reyndum boxarar úr Finnska landsliðinu með 46 bardaga. Fajer stóð vel í bardaganum en vantaði aðeins upp á til að ná sigrinum. Niðurstaða brons.
Arnar Jaki Smárason U19 fór beint í úrslit í -65kg á móti reyndum Finna. Arnar átti mjög góða frammistöðu og var bardaginn hníf jafn á stigum í loka lotunni en á endanum var niðurstaðan 2-1 split decision fyrir heimamanninum.
Niðurstaða silfur
Yahya Ghazali U19 fór einnig beint í úrslit á móti öflugum Finna og átti Yahya mjög solid frammistöðu en það dugði ekki til að tryggja sér gullið í þetta skiptið. Niðurstaða silfur
Viktor Örn Sigurðsson U19 -80 kg tapaði á móti Finnlandi í skemmtilegum bardaga sem var mjög jafn. Viktor setti pressuna á Finnann allan tímann og átti flotta frammistöðu. Niðurstaða brons
Kormákur Steinn Jónsson U19 -70 kg fór einnig á móti Finnlandi og átti flotta frammistöðu í mjög jöfnum bardaga en dugði ekki til að sannfæra dómarana. Niðurstaða brons.
Hópurinn stóð sig mjög vel, vantaði herslumuninn hjá þeim að sigla þessu heim, þvílíkar bætingar hjá öllum á tímabilinu. Strákarnir fengu allir mjög góða andstæðinga, góð reynslu og fullt sem þeir taka frá þessu sem þeir fara beint í að vinna í sagði Kjartan Valur Guðmundsson þjálfari strákanna.





