HomeBoxPatrick með fjóra sigra á fimm vikum

Patrick með fjóra sigra á fimm vikum

Patrick „The Viking” Stassen hefur verið vægast sagt upptekinn síðastliðnar vikur en þýski Íslendingurinn barðist fjórum sinnum á síðastliðnum fimm vikum og landaði jafnframt fjórum sigrum. Patrick hefur núna fengið fimmta bardagann sinn á árinu staðfestan og mun hann fara fram í Þýskalandi þann 6. september. Patrick, sem berst undir merkjum Reykjavík MMA, mun mæta Piotr „Bubu” frá Póllandi. Andstæðingurinn sem ætti að vera okkur kunnugur nú þegar en Kolbeinn Kristinsson mætti honum í desember 2024.

Patrick hefur sinnt stöðu hnefaleikaþjálfara hjá Reykjavík MMA en stefnan hans var alltaf að berjast sem áhugamaður í hnefaleikum áður en hann myndi svo færa sig yfir í atvinnumennskuna. Eftir að hafa verið lengi frá hringnum í nokkur ár og beðið í 6 mánuði eftir bardaga án árangurs ákvað Patrick að láta slag standa og þreyta frumraun sína í atvinnumennskunni. Hann kláraði fyrsta bardagann sinn í hnefaleikum á 48 sekúndum með rothöggi.

Þá tók við rússíbani af bardögum en Patrick var mættur tveimur vikum seinna í MMA-frumraun sína, helgina eftir barðist hann K1 Kickbox-bardaga sem hann sagði vera mjög erfiðan bardaga og síðasta laugardag barðist hann svo aftur í hnefaleikum. Eftir fimm ofbeldisfullar vikur stendur þýski víkingurinn ósigraður í þremur bardagagreinum.

Patrick mun mæta reyndasta og erfiðasta andstæðingnum sínum til þessa þann 6. september þegar hann mætir Piotr „Bubu” Cwik í þungavigtinni. Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem Piotr mætir bardagamanni frá Íslandi en Kolbeinn Kristinsson fór fremur létt með Bubu þegar þær mættust í desember 2014. Á þeim tíma þótti Piotr þokkalega mikið efni í hnefaleikum en bardaginn gegn Kolbeini hefur markað nokkurs konar kaflaskipti hjá þeim pólska og allt verið niður á við síðan hann mætti ísbirninum.

Patrick vonast til þess að bardaginn gegn Piotr „Bubu” verði upp á titil í hnefaleikum en Patrick er í fjölmörgum viðræðum og gæti átt möguleika á fleiri titilbardögum fyrir lok árs. Síðastliðnar vikur hafa verið virkilega viðburðaríkar og hafa hjólin virkilega byrjað að snúast hjá Patrick sem hafði beðið lengi eftir bardaga. Patrick segir stefnuna setta á 100-200 sæti á styrkleikalistanum í hnefaleikum.

Patrick ferðast í þetta ævintýri ásamt Valgerði Guðsteinsdóttur sem einnig sótti sigur þann 1. ágúst á sama bardagakvöldi og Patrick barðist á. Þetta var áttundi sigurinn hennar Valgerðar á ferlinum.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið