Sean Strickland, ríkjandi UFC-meistari í millivigt, lenti í alvarlegu fjórhjólaslysi í Las Vegas á mánudagskvöld. Strickland var farþegi þegar vinur hans ók ökutækinu og missti stjórn á því á um 60 mílna hraða, eða tæplega 100 km/klst. Ökutækið valt að sögn Strickland um sex sinnum.
Strickland birti sjálfur myndbönd eftir slysið þar sem hann sýndi áverka á höfði, öxl og baki. Hann var ekki með hjálm þegar slysið varð og viðurkenndi sjálfur að það hefðu verið mikil mistök. „Ég er hálfviti,“ sagði Strickland þegar hann sýndi áhorfendum sárin á höfðinu eftir að hafa skollið í jörðina.
„Ég leyfði félaga mínum að keyra. Hann velti okkur á um 60 mílna hraða. Við veltum svona sex sinnum,“ sagði Strickland í myndbandinu. Hann lýsti einnig því hvernig hann hefði skollið í jörðina og steypst í gegnum mold og steypu áður en ökutækið stöðvaðist.
Í fyrstu lýsti Strickland ástandinu á ansi rólegan hátt miðað við aðstæður og sagðist ætla að leggjast niður og sofa. Síðar kom hann með uppfærslu þar sem hann sagðist telja sig í lagi en viðurkenndi jafnframt að hann væri „smá heilahristur“. Vinur hans, Chris, missti meðvitund eftir slysið og var fluttur á sjúkrahús.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Strickland lendir í alvarlegu umferðarslysi. Árið 2018 lenti hann í mótorhjólaslysi í Los Angeles sem hélt honum frá keppni í nærri tvö ár og hafði meðal annars mikil áhrif á hné hans. Nú er hann aftur kominn á toppinn í UFC eftir að hafa unnið Khamzat Chimaev með klofnum dómaraúrskurði á UFC 328 í maí og endurheimt millivigtarbeltið.
Strickland hafði verið orðaður við titilvörn síðar á árinu, meðal annars gegn Nassourdine Imavov, en UFC hefur ekki formlega staðfest næsta bardaga hans. Eftir slysið er því óvíst hvort áætlanir um næstu titilvörn haldist óbreyttar. Enn liggja heldur ekki fyrir nákvæmar læknisupplýsingar um meiðsli Strickland.
Þrátt fyrir allt þetta var Strickland óvenju afslappaður í seinni uppfærslu sinni. „Þetta var það skemmtilegasta sem ég hef gert í mjög, mjög langan tíma,“ sagði hann um slysið. UFC-meistarinn virðist því sjálfur telja sig hafa sloppið vel en eftir sex veltur á tæplega 100 km/klst. hraða verður næsta spurning einfaldlega hvort líkaminn sé jafn sammála.






