Ritaður verður síðasti kafli í bölvuðustu MMA-sögu Íslandssögunnar þegar Hrafn Þráinsson og Will Bean mætast í aðalbardaga Glacier Fight Night 3. Þeir hafa mæst tvívegis áður og luku báðum viðureignunum með No Contest eftir hverja dramatíkina á eftir annarri. Þeir fengu boð um að mætast í þriðja skiptið núna hér á Íslandi og gat hvorugur látið tækifærið fram hjá sér fara.
Eins og frægt er orðið lauk fyrsta bardaganum milli Hrafns, betur þekktur sem Krummi, og Will Bean með uppgjafartaki þar sem Bean náði Krumma í Rear Naked Choke eftir að lotunni hafði lokið. Will Bean fagnaði ákaft þegar hann taldi sig hafa sigrað en þar sem lotan var búin ákváðu bæði þjálfarateymin og bardagamennirnir að halda áfram í samráði við dómara og mótshaldara og lauk þá bardaganum með einróma sigri Krumma. Breska teymið hans Will Bean krafðist þess að bardaginn yrði dæmdur No Contest eftir á og varð það svo. Seinni bardaganum lauk í annarri lotu þegar Will Bean stakk fingri djúpt í auga Krumma sem varð til þess að hann blindaðist tímabundið og þurfti þá að sauma átta spor í augnlokin á Krumma eftir bardagann. Niðurstaðan var þá tvö No Contest af tveimur viðureignum. Áhugamenn um líkindareikning mega vita að líkurnar á tveimur No Contest niðurstöðum milli tveggja manna í röð eru 0,0045%.
Með húð úr pappír og tilbúinn í síðasta dansinn
Krummi taldi sig vera búinn með MMA-ferilinn og hafði ekki séð fyrir sér að berjast meira þangað til honum bauðst að eiga þríleik gegn Will Bean á Íslandi í Framheimilinu þann 3. október. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast síðustu miðana inni á moment.is. Krummi og Will Bean byrjuðu báðir að æfa stíft til að koma sér í besta mögulega standið fyrir bardagann. Í viðtali við MMA Fréttir segir Krummi að hann sé í þrusugóðu standi fyrir bardagann sem verður jafnframt hans síðasti. Eina vandamálið sé að húðin virðist gerð úr pappír og er gjörn á að opnast fyrir skurðum. Það liggur því í loftinu að lokakaflinn þeirra Krumma og Bean verði dramatískur og skemmtilegur eins og alltaf.
Glacier Fight Night hóf göngu sína fyrir ári síðan með stórskemmtilegu kvöldi á Ásbrú í október og ætla mótshaldarar að fagna þessum áfanga með eftirminnilegu kvöldi og skemmtun sem leggur grunn að því að gera bardagakvöldið að alþjóðlegri skemmtun.
Það verður gríðarlega spennandi að sjá þessa hámarksdramatík spilast út í Framheimilinu. Spurningin er bara hvor þeirra skrifar sig í sögubækurnar sem sigurvegari bölvuðustu viðureignar samtímans?






