Það styttist óðfluga í Glacier Fight Night 3 þar sem Hekla Friðriksdóttir mun mæta Kerrtu Saarnisaari frá Finnlandi í kvennabardaga kvöldsins. GFN 3 verður haldið 3. október en okkar eina sanna Heklu tókst að finna sér bardaga í millitíðinni og ætlar sér að búa til alþjóðlegan MMA ástarþríhyrning áður en hún mætir Kerrtu. Hekla mun mæta Caroline Moller frá Danmörku en sú hefur mætt Kerrtu Saarnisaari tvívegis.
Þann 28. ágúst mun Hekla halda út til Randers í Danmörku og berjast þrjár lotur gegn Caroline Moller í fjaðurvigtinni. Caroline er reyndur andstæðingur sem vann Evrópumeistaramót IMMAF fyrr á árinu og hafnaði í öðru sæti á Norðurlandamótinu. Báðar úrslitaviðureignirnar hennar Caroline voru gegn Kerrtu Saarnisaari sem Hekla mun berjast við á Glacier Fight Night í Framheimilinu í október. Caroline er 4-5 sem áhugakona í MMA en hún byrjaði ferilinn sinn á því að tapa fyrstu fjórum viðureignunum sínum áður en hún landaði loksins sigri en hún hefur núna einungis tapað einu sinni í síðustu 5 viðureignum sínum.
„Ég var mega ánægð þegar bardaginn bauðst“
Hekla sagði í samtali við MMA Fréttir að hún hefði verið að stefna á að berjast í júní en þá hafði ekki fengist andstæðingur. Hún var búin að æfa mikið og var undirbúin ef kallið kæmi en allt kom fyrir ekki. Eftir á segir Hekla að það hafi líklega verið fyrir bestu þar sem að hún var virkilega upptekin að sinna lífinu. Hekla hefur verið tilbúin í bardaga lengi og fannst langt í GFN. Hún gladdist mjög þegar boðið kom um að berjast í Danmörku gegn Caroline.
Bardaginn gegn danska meistaranum er virkilega gott stöðupróf fyrir Heklu. Caroline er með einn sigur og tap gegn Kerrtu sem við Íslendingar fáum í heimsókn í október. Sigur eða góð frammistaða gegn Caroline ætti að gefa Heklu mikið sjálfstraust komandi inn í bardagann í október og í lok árs mun Hekla vita upp á hár hvar hún stendur gagnvart þeim allra bestu í Evrópu og Norðurlöndunum.
Hekla segir að Caroline sé frekar striker en grappler. Hún ásamt teyminu sínu í Reykjavík MMA hefur verið að fara yfir það sem Caroline notar mikið, t.d. Frontkick til að undirbúa sig fyrir bardagann. Eins og alltaf sér Hekla fyrir sér að bardaginn fari á gólfið og hún muni „buffa hana“ þar.






