UFC 270 fer fram í kvöld þar sem tveir titilbardagar eru á dagskrá. Hér má sjá hvenær bardagarnir byrja í kvöld.
Þungavigtarmeistarinn Francis Ngannou mætir sínum fyrrum æfingafélaga og bráðabirgðarmeistaranum Ciryl Gane í aðalbardaga kvöldsins. Í næstsíðasta bardaga kvöldsins verður barist um fluguvigtartitilinn þegar þeir Brandon Moreno og Deiveson Figueiredo mætast í þriðja sinn.
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst á miðnætti en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl. 3:00. Áskrifendur á Ultimate Annual á Fight Pass rás UFC geta horft á alla bardaga kvöldsins en aðalhluti bardagakvöldsins er einnig sýndur á Viaplay með íslenskri lýsingu.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 3:00)
Titilbardagi í þungavigt: Francis Ngannou gegn Ciryl Gane
Titilbardagi í fluguvigt: Brandon Moreno gegn Deiveson Figueiredo
Veltivigt: Michel Pereira gegn André Fialho
Bantamvigt: Cody Stamann gegn Said Nurmagomedov
Veltivigt: Trevin Giles gegn Michael Morales
ESPN2 / ESPN+ upphitunarbardagar (hefjast kl. 1:00)
Bantamvigt: Raoni Barcelos gegn Victor Henry
Veltivigt: Jack Della Maddalena gegn Pete Rodriguez
Bantamvigt: Tony Gravely gegn Saimon Oliveira
Léttvigt: Matt Frevola gegn Genaro Valdéz
ESPN+ / UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti)
Strávigt kvenna: Silvana Gomez Juarez gegn Vanessa Demopoulos
Fluguvigt kvenna: Kay Hansen gegn Jasmine Jasudavicius