UFC heimsækir Montcon í Kanada í kvöld. Þeir Volkan Oezdemir og Anthony Smith mætast í kvöld í aðalbardaga kvöldsins en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja í kvöld.
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl. 22:30 á Fight Pass rás UFC en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl. 2 í nótt og verður í beinni bæði á Stöð 2 Sport og Fight Pass. Hér má sjá þá bardaga sem verða á dagskrá.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 2)
Léttþungavigt: Volkan Oezdemir gegn Anthony Smith
Hentivigt (147 pund): Michael Johnson gegn Artem Lobov
Léttþungavigt: Misha Cirkunov gegn Patrick Cummins
Bantamvigt: Andre Soukhamthath gegn Jonathan Martinez
Léttþungavigt: Gian Villante gegn Ed Herman
Veltivigt: Alex Garcia gegn Court McGee
Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti):
Veltivigt: Nordine Taleb gegn Sean Strickland
Léttvigt: Thibault Gouti gegn Nasrat Haqparast
Fjaðurvigt: Calvin Kattar gegn Chris Fishgold
Bantamvigt kvenna: Sarah Moras gegn Talita Bernardo
UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast kl. 22:30)
Léttvigt: Te’Jovan Edwards gegn Don Madge
Þungavigt: Arjan Bhullar gegn Marcelo Golm
Léttvigt: Stevie Ray gegn Jessin Ayari