Friday, April 26, 2024
HomeForsíðaGrettismótið 2018 úrslit

Grettismótið 2018 úrslit

Grettismót Mjölnis fór fram í dag. Halldór Logi Valsson og Inga Birna Ársælsdóttir úr Mjölni voru sigurvegarar dagsins en þau unnu bæði sína flokka og opnu flokkana.

Keppendur frá fjórum félögum voru skráðir til leiks í ár og mátti sjá marga sterka keppendur á mótinu. Margar glæsilegar glímur litu dagsins ljós á mótinu í ár og glæsileg tilþrif. Halldór Logi Valsson sigraði Marek Bujło í úrslitaglímunni í opnum flokki karla og var glíman hnífjöfn. Halldór sigraði 2-0 og er þetta í þriðja sinn sem hann vinnur opinn flokk karla á Grettismótinu og í annað sinn í röð.

Inga Birna Ársælsdóttir tók opinn flokk kvenna eftir sigur með uppgjafartaki gegn Sigurði Jóhanni Helgasyni en þetta er sömuleiðis annað árið í röð sem Inga vinnur opna flokkinn á Grettismótinu.

Sigurjón Kári Sigurjónsson fékk svo verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins. Hér að neðan má sjá öll úrslit mótsins.

-68 kg flokkur karla

1. sæti: Pétur Óskar Þorkelsson (Mjölnir)
2. sæti: Sigursteinn Óli Ingólfsson (Mjölnir)
3. sæti: Gunnar Sigurðsson (VBC)

-79 kg flokkur karla

1. sæti: Merlin Gallery (Mjölnir)
2. sæti: Valdimar Torfason (Mjölnir)
3. sæti: Hafþór Gunnlaugsson (Mjölnir)

-90 kg flokkur karla 

1. sæti: Þórhallur Ragnarsson (Mjölnir)
2. sæti: Sigurjón Kári Sigurjónsson (Mjölnir)
3. sæti: Sigurpáll Albertsson (VBC)

-101 kg flokkur karla

1. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
2. sæti: Eiður Sigurðsson (RVK MMA)
3. sæti: Diego Björn Valencia (Mjölnir)

+101 kg flokkur karla

1. sæti: Marek Bujło (Mjölnir)
2. sæti: Brynjar Örn Ellertsson (Mjölnir)

-64 kg flokkur kvenna

1. sæti: Ingibjörg Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Sigurður Jóhann Helgason (Mjölnir)

-74 kg flokkur kvenna

1. sæti: Lilja Guðjónsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Gunnhildur Þorkelsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Vera Illugadóttir (Mjölnir)

+74 kg flokkur kvenna

1. sæti: Guðrún Björk Jónsdóttir (VBC)
2. sæti: Ásta Sveinsdóttir (Mjölnir)
3. sæti: Ásta Bolladóttir (Mjölnir)

Opinn flokkur karla

1. sæti: Halldór Logi Valsson (Mjölnir)
2. sæti: Marek Bujło (Mjölnir)
3. sæti: Sigurpáll Albertsson (VBC)

Opinn flokkur kvenna

1. sæti: Ingibjörg Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)
2. sæti: Sigurður Jóhann Helgason (Mjölnir)
3. sæti: Vera Illugadóttir (Mjölnir)

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular