HomeBJJÍslendingar streyma til Póllands á ADCC Trials

Íslendingar streyma til Póllands á ADCC Trials

ADCC European, Middle East & African Championship 2025 Trials fer fram laugardaginn 6. september. ADCC er auðvitað þekktasta og virtasta glímumót senunnar en sigurvegarinn í hverjum keppnisflokki fyrir sig mun öðlast réttindi til að keppa á ADCC.

Reykjavík MMA sendir fjögurra manna lið Póllands og munu þau Hekla Friðriksdóttir, Vitalii Korshak, Ernest Herashchenko og Roman Korshak keppa fyrir hönd Reykjavík MMA og mun Vilhjálmur „Turtle“ Arnarsson fylgja með einnig. Mjölnirsmenn verða með keppendur á mótinu líka en það eru þeir Jón Frank Jóhannesson og Baltasar Diljan sem reyna fyrir sér í byrjendaflokki.

Að venju verður sýnt frá mótinu inn á flowgrappling hér

Öll skráning fór fram á Smoothcomp og má fylgjast með úrslitum og gangi mála hér

Jón Frank, 17 ára, hefur mikla keppnisreynslu þrátt fyrir ungan aldur og má eiga von á flottu móti hjá honum um helgina. Hann er sem stendur með skráða 32 sigra í uppgjafarglímu og keppti hann síðast á Atlantic Open í sumar þar sem hann var óheppinn að mæta Stefáni Fannari snemma í mótinu en hann nýtti tækifærið og rakaði inn þremur sigrum eftir viðureignina gegn glímuskrímslinu.

Reykjavík MMA sendir sterkt lið

Ernest Herashchenko ásamt bræðrunum Vitalii og Roman Korshak hafa komið feykisterkir inn í glímusenuna á Íslandi eftir að hafa neyðst til að færa sig um set frá Ukraínu. Allir stefna þeir á feril í MMA og nýta sér ADCC mótið til að sækja sér dýrmæta reynslu. Ernest og Vitalli sigruðu báðir með yfirburðum þegar þeir kepptu í fyrsta skipti fyrir hönd Reykjavík MMA á Caged Steel 39. Roman bíður þess enn að berjast á áhugamannastigi í MMA en sá er einungis 15 ára gamall og mun líklega ljúka grunnskólanum áður en hann stigur inn í búrið.

Hán Hekla Friðriksdóttir er eini virki íslenski MMA-keppandinn í kvennaflokki. Hekla virðist ætla að vera hrikalega dugleg að keppa en hán fékk nýlega staðfestan bardaga á UK Championship í Preston, Englandi þann 20. september. Hekla keppir í -65 kg flokki á ADCC sem er ekki fjölmennur flokkur og fer Hekla beint í 8 manna úrslit þar sem hún mætir Elizabeth Kristel Silva Leon frá Peru í fyrstu glímu dagsins.

Vilhjálmur Arnarsson ferðast einnig út en hann er þessa dagana ekki hluti af neinum ákveðnum klúbbi og glímir fyrir sjálfan sig og Manto. Vilhjálmur, betur þekktur sem „Villi Turtle“, tók æfingabúðir í Þýskalandi fyrir mótið en svartbeltingurinn ljúfi hefur verið virkilega duglegur að ferðast út og keppa erlendis, síðast gegn Shane Curtis á Valhalla Submission Grappling 7. Þess má til gamans geta að Villi fékk greiddar 125 evrur fyrir glímuna sína gegn Shane og telst þar með vera næst því að vera íslenskur atvinnumaður í glímu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið