Strávigtarmeistari UFC, Jessica Andrade, var rænd á dögunum í Brasilíu. Andrade varð ekki fyrir meiðslum en ræningjarnir voru vopnaðir byssum.
Jessica Andrade varð strávigtarmeistari fyrr í mánuðinum með sigri á Rose Namajunas. Andrade var að keyra í Niteroi í Brasilíu þar sem hún býr ásamt eiginkonu sinni þegar ræningjar stöðvuðu bíl þeirra.
Ræningjarnir neyddu þær úr bílnum og stálu símum þeirra, veskjum og bílnum. Báðar eru þær við góða heilsu og er lögreglan að vinna í málinu.