Joe Rogan hefur lagt til hugmynd að léttvigtar/fjaðurvigtar fléttu sem trúlega margir áhugamenn um blandaðar bardagalistir gætu vel hugsað sér að sjá spilast út. Það eru margir sem hafa horft til að næsti bardagi Ilia Topuria ætti að vera bardagi við Alexander Volkanovski um fjaðurvigtarbeltið en Topuria sigraði Volkanovski með rothöggi fyrir um ári síðan og hirti um leið fjaðurvigtarbeltið af honum.
Topuria er ekki spenntur fyrir því að endurtaka bardaga við Volkanovski og hefur hann gefið í skyn að hann vilji berjast í léttvigtinni og fá þá strax tækifæri á því að berjast við Islam Makachev um léttvigtarbeltið en Topuria hefur varið titil sinn í fjaðurvigtinni einu sinni.
Þessi hugmynd Topuria hefur mætt nokkurri gagnrýni enda hafa meistarar oftar en ekki varið titil sinn nokkrum sinnum og jafnvel tæmt sína deild áður en þeir fá tækifæri á því að hoppa upp um þyngdarflokk og berjast við meistarann þar. Joe Rogan er ekki einn af þeim en hann tjáði sig um möguleika Topuria í þætti sínum The Joe Rogan experiance nýverið þar sem hann sagði að næsti bardagi Topuria ætti að vera við Islam um léttvigtarbeltið. Þá sagði Rogan að hann vissi að Topuria hefði varið titil sinn einu sinni en honum væri alveg sama, let´s go sagði Rogan að endingu.
Það verður forvitnilegt að sjá hvort Topuria fái tækifæri á því að berjast við Islam eftir aðeins eina titilvörn en eins og komið hefur fram er mjög sjaldgæft að bardagamenn fái að hoppa upp um deild en það eru ekki margir sem hafa rotað Max Holloway, reyndar er það aðeins einn maður og það er Ilia Topuria.





