Atvinnumaðurinn og heljarmennið Kolbeinn Kristinsson (18 – 0) hefur lengi stefnt á að berjast aftur fyrir lok árs og er núna kominn með auga á næsta bardaga. Ekki hefur enn fengist staðfest hver andstæðingurinn verður í þetta skipti en boxrec.com staðfestir að bardaginn muni fara fram í borginni Oulu í Finnlandi.
Eins og alþjóð veit er Kolli enn ósigraður sem atvinnumaður í hnefaleikum og hefur hann að sama skapi daðrað við samning við stærstu hnefaleikasambönd í heimi síðan hann sigraði Mike Lehnis í Þýskalandi í sumar.
Enn sem komið er hefur ekki verið staðfest hver andstæðingurinn verður í þetta skipti en bardaginn mun fara fram þann 29. nóvember næstkomandi í Oulun Kamppailuklubi. Þetta verður annar bardaginn hans Kolla á árinu en hann á einnig staðfestan bardaga á hnefaleikahátíð í Kongo á næsta ári gegn John Cantrell.
Kolbeinn er tvöfaldur þungavigtarmeistari og er það aðeins tímaspursmál hvenær stóra stundin rennur upp og við fáum að sjá hann á stóra sviðinu í Englandi eða Bandaríkjunum. En miðað við nýjustu fréttir gætu við þurft að bíða þangað til snemma næsta vor eftir þeirri gleði.
Kolbeinn átti bardaga gegn Mike Lehnis í sumar þar sem hann þurfti að standa af sér nokkuð mótlæti þangað til honum tókst að leysa ráðgátuna sem Mike bauð upp á.
Áhugasamir geta skoðað bardagann hans Kolla hér fyrir neðan.





