Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaMiðvikudagsgetraunin 26. febrúar í boði Lebowski Bar

Miðvikudagsgetraunin 26. febrúar í boði Lebowski Bar

Miðvikudagsgetraunin er fastur liður hér á MMA fréttum. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, en sigurvegarinn fær máltíð að eigin vali fyrir tvo á Lebowski bar! Á Lebowski bar færðu frábæra hamborgara og sjeika! Getraunin er einföld, borin er upp spurning hér á síðunni á ýmsum formum og ef lesendur vita svarið senda þeir rétt svar á ritstjorn@mmafrettir.is. Dregið er svo úr réttum svörum. Til að vinna þurfa lesendur að vera með rétt svar og vera búinn að “like-a” Facebook síðu okkar. Vinsamlegast getið fulls nafns í póstinum. Svarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld.

International Fight League (IFL) var fyrsta liðakeppnin í MMA. Á hverju bardagakvöldi fóru tvö lið gegn hvort öðru þar sem hver liðsmaður keppti einn bardaga gegn liðsmanni hins liðsins á hverju bardagakvöldi. Keppnin lifði einungis í 18 mánuði en þarna börðust lið eins og Los Angeles Anacondas, Seattle Tiger Sharks, Toronto Dragons, New York Pitbulls og fleiri lið. En frá hvaða þekkta þjálfara og klúbbi komu New York Pitbulls?

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular