Hið árlega Mjölnir Open mót mun fara fram í lok Apríl og er, eins og nafnið gefur til kynna, opið öllum sem hafa áhuga á að keppa í BJJ. Apríl verður sannkallaður BJJ mánuður enda er Mjölnir Open haldið 2 vikum eftir Training Day – Interclub í Reykjavík MMA.
Á heimasíðu Mjölnis segir
“Mjölnir Open er mót þar sem keppt er í uppgjafarglímu (Brasilísku Jiu Jitsu). Mótið er opið öllum glímufélögum landsins. Keppt er í þyngdarflokkum karla og kvenna auk opinna flokka. Að auki eru veitt verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins. Mjölnir Open er eitt stæsta nogimót Íslands og fer stækkandi með hverju árinu. Mjölnir Open er venjulega haldið snemma árs eða í mars. Mjölnir Open fyrir unglinga er einnig haldið einu sinni á ári.“
Eins og hefðin segir þá munu öll getustig keppa saman, en í þyngdarflokkum
Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla
Opinn flokkur Kvenna
- +70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 65 kg kvenna
- 60 kg kvenna
Skráningargjald er 4.000 kr.