Patrick Cummins mætti Gian Villante á UFC bardagakvöldinu á Long Island í New York í gær. Cummins vann eftir klofna dómaraákvörðun en mátti þola ýmislegt til að ná sigrinum í höfn.
Bardaginn fór fram í léttþungavigt og átti báðir sín augnablik í bardaganum. Cummins fékk snemma skurð á höfuðið eftir að höfuð þeirra skullu saman í 1. lotu. Blæddi nokkuð úr Cummins en hann var líka vel bólginn undir vinstra auganu eftir högg frá Villante.
Cummins þraukaði allt af sér og stóð uppi sem sigurvegari. Hann tók sjálfu af sér í sjúkrabílnum eftir bardagann og má segja að hann hafi eflaust litið betur út.
#AmbulanceSelfie one more time #ForTheLadies #UFConFOX25
Fight Of The Night pic.twitter.com/ZWLSd7u1t0— Patrick Cummins (@OfficialDurkin) July 23, 2017