Kamaru Usman sigraði Colby Covington með tæknilegu rothöggi í fimmtu lotu í nótt. Samkvæmt skorblöðum dómaranna var allt undir fyrir fimmtu og síðustu lotuna.
UFC 245 fór fram í nótt þar sem þeir Usman og Covington mættust í aðalbardaga kvöldsins. Bardaginn var hnífjafn og spennandi og var allt undir fyrir fimmtu og síðustu lotuna samkvæmt skorblöðum dómaranna.
Dómararnir þrír voru ekki sammála um loturnar þrjár. Dómarinn Derek Cleary gaf Usman þrjár lotur (2., 3. og 4. lotu), Sal D’Amato gaf Covington þrjár lotur (1., 2. og 4. lota) og Eric Colon gaf báðum tvær lotur hvor. Það var því allt undir fyrir fimmtu og síðust lotuna. Samtals var skorið 39-37 Usman, 38-38, 39-37 Covington.
Covington var mjög ósáttur við ákvörðun dómarans Marc Goddard að stöðva bardagann en Usman hafði þá kýlt Covington tvisvar niður. Þó dómarinn hefði ekki stöðvað bardagann hefði Usman sennilega unnið þá lotu eftir að hafa kýlt Covington tvisvar niður og þar af leiðandi unnið eftir dómaraákvörðun.