Conor McGregor virðist aftur vera kominn í vandræði. Samkvæmt myndbandi frá slúðurmiðlinum TMZ virðist Conor McGregor kýla eldri mann á knæpu í Dublin.
Myndbandið sýnir mann ganga inn á bar í Dublin en maðurinn er sagður vera Conor McGregor. Maðurinn hellir í nokkur glös af Proper 12 viskí Conor og deilir glösunum. Einn knæpugestur virðist ekki hafa áhuga á að fá sér viskíglas og skilar glasinu í tvígang. Við það virðist Conor reiðast og kýlir manninn áður en Conor er dreginn út.
Samkvæmt TMZ átti atvikið sér stað í apríl og hefur verið í rannsókn hjá lögreglunni í Dublin en engin ákæra hefur borist vegna málsins.
Ekki er vitað hvað fór nákvæmlega þeirra á milli en Conor virðist endalaust koma sér í vandræði.