Ný stikla gerð af aðdáenda hefur vakið nokkra athygli meðal bardagaaðdáenda að undanförnu. Nú er minna en mánuður í UFC 205 og spennan farin að magnast.
UFC 205 fer fram í New York en þetta verður fyrsti viðburður UFC í New York síðan MMA var aftur lögleitt í ríkinu. Stiklan sýnir brot af umræðunum á þinginu þegar tekist var á um málefnið.
Sá sem klippti þessa stiklu til kallar sig kwozymoto og hefurt margoft gert flott myndbönd og stiklur tengt UFC en þetta er eitt af hans betri verkum.