Það var enginn annar en Hulk sjálfur sem lét sjá sig í vigtuninni í gær fyrir UFC bardagakvöldið í Portland. Ion ‘The Hulk’ Cutelaba málaði sig grænan og reif bolinn sinn eins og Hulk sjálfur.
Ion Cutelaba (11-2) berst sinn annan bardaga í UFC í kvöld. Hann mætir Jonathan Wilson og vakti heldur betur athygli á sér í gær. Cutelaba kemur frá Moldavíu og er gælunafnið hans Hulk þar sem hann þykir svo hrikalega sterkur.
Jonathan Wilson er sjálfur með skemmtilegt gælunafn. Hann kallar sig Johnny Bravo og má því segja að bardaginn í kvöld sé á milli The Hulk og Johnny Bravo.
Myndband af vigtuninni má sjá hér.