Collin Reuter sigraði Gerald Fike með þessu ótrúlega rothöggi. Rothöggið leit ansi illa út fyrir Fike en hann stóð upp að lokum og virtist í lagi.
Bardagi Reuter og Fike fór fram þann 1. febrúar 2013 á Solid as a Rock Championship bardagakvöldinu. Þeir Reuter og Fike höfðu mæst þremur árum fyrr þar sem bardaginn endaði með jafntefli. Í þetta sinn var bardaginn aðalbardagi kvöldsins og var Reuter óumdeilanlegur sigurvegari. Reuter rotaði Fike eftir aðeins 22 sekúndur í fyrstu lotu. Fike hefur ekkert barist eftir þetta rothögg og líklegast ákveðið að leggja hanskana á hilluna.