í dag aðeins ein vika í UFC 200. Aðalbardagi kvöldsins verðu annar bardagi Jon Jones og Daniel Cormier. Jones sigraði fyrsta bardagann á stigum en var síðar sviptur beltinu vegna vandræðagangs eins og flestir ættu að muna eftir. Í fjarveru Jones náði Cormier að krækja sér í titilinn og því er það hann sem reynir að verja beltið að þessu sinni.
Hinn rafmagnaði Robin Black greinir bardagann í myndbandinu að neðan.