Chalawan Por Onnut náði ansi athyglisverðu rothöggi í Muay Thai á dögunum. Þá tók hann gott framspark í andstæðinginn sem smellhitti.
Chalawan Por Onnut vann Rambong Leesorkanka á fimmtudaginn í Muay Thai á Rajadamnern Stadium. Chalawan náði þá góðum olnboga í höfuð Rambong, sparki í skrokkinn og að lokum framspark beint í andlitið. Sparkið gerði út af við bardagann og var Chalawan sigurvegari.