Shooto Brazil 94 fór fram í gær í Brasilíu. Þar mátti sjá ansi athyglisvert rothögg eftir háspark.
Þeir Heder Araujo og Marcus ‘Ogro’ Bruno mættust í fjaðurvigt í gær. Bruno henti í háspark en þrátt fyrir að Araujo setti hendurnar upp steinlá hann eftir sparkið.
Þetta var fyrsti atvinnubardagi Bruno en Araujo er nú 3-5-1 eftir tapið.
Bruno Ogro scores one of the nastiest head kick KO's of the year #ShootoBrasil94 pic.twitter.com/3t9Kw7tniQ
— caposa (@Grabaka_Hitman) August 24, 2019