Conor McGregor var á forsíðu Sports Illustrated tímaritsins á dögunum. Hér hefur tímaritið gert stuttan og skemmtilegan heimildarþátt um Írann kjaftfora.
Sports Illustrated er eitt virtasta íþróttatímaritið í Bandaríkjunum en McGregor er aðeins þriðji MMA bardagamaðurinn sem kemst á forsíðu tímaritsins. Ronda Rousey og Roger Huerta afrekuðu það sama en McGregor er einnig fyrsti Írinn til að komast á forsíðuna.