Ethyn Ewing vakti mikla athygli í frumraun sinni í UFC þegar hann sigraði Malcolm Wellmaker, bardagamann sem margir höfðu bundið miklar vonir við. En það er ekki bara sigurinn sjálfur sem hefur fengið fólk til að taka eftir honum heldur sagan á bakvið hann.
Ewing starfar sem öryggisfulltrúi á byggingarsvæði og hefur verið að sinna því starfi samhliða MMA ferlinum. Eftir stærsta sigur ferilsins í UFC frumraun sinni mætti hann einfaldlega aftur í vinnuna á mánudeginum, þar sem samstarfsfélagar hans tóku á móti honum eins og hetju.
Sagan verður svo enn skemmtilegri þegar horft er á andstæðinginn í frumrauninni. Wellmaker starfaði sjálfur við byggingarvinnu og hafði haldið því áfram þar til hann fékk 50.000 dollara bónus fyrir fyrri bardaga og ákvað í kjölfarið að einbeita sér alfarið að MMA. Þegar þeir mættust var því ákveðin kaldhæðni í gangi – öryggisfulltrúinn gegn verkamanninum – og það var sá fyrrnefndi sem fór með sigur af hólmi.
Frammistaða Ewings kom mörgum á óvart og setti nafn hans strax á kortið, sérstaklega þar sem Wellmaker hafði verið talinn sigurstranglegri og á mikilli uppleið innan samtakanna.
Í kvöld fær Ewing svo tækifæri til að byggja ofan á þessa byrjun þegar hann stígur aftur inn í búrið á bardagakvöldinu í Apex-inu. Hann mætir þar Rafael Estevam í bardaga sem gæti sagt mikið til um hvar hann stendur eftir þessa sterku frumraun.
Samkvæmt stuðlunum á Coolbet er Ewing talinn sigurstranglegri en bardaginn þó talinn nokkuð jafn, en Ewing fer inn í kvöldið með aukna athygli á bakinu eftir síðasta sigur.






