https://www.youtube.com/watch?v=J10k91lcjr0
Quinton ‘Rampage’ Jackson var á mánudaginn gestur í The MMA Hour hjá Ariel Helwani. Rampage hefur lengi verið ósáttur við Helwani en hringdi í hann til reyna að sættast við hann.
Í þættinum á mánudaginn sagðist Rampage ekki vera aðdáandi Helwani. Ariel Helwani er einn virtasti fjölmiðlamaður í MMA heiminum en Rampage hefur verið ósáttur við hann í um tvö ár. Í þættinum á mánudaginn reyndi Helwani að sættast við Rampage sem tók það ekki í mál.
Aðdáendur Rampage gagnrýndu framkomu hans í þættinum og virðist Rampage hafa séð eftir framkomu sinni. Hann hringdi því í Helwani eldsnemma um morguninn eftir að hafa fengið sér aðeins í aðra tánna. Hér að neðan má hlusta á viðtal Helwani við Rampage í 300. þætti The MMA Hour.