HomeBJJReykjavík Open haldið í þriðja skipti

Reykjavík Open haldið í þriðja skipti

Hið árlega opna mót Reykjavík MMA, Reykjavík Open, fór fram laugardaginn 28. mars. Keppt var í þremur karlaflokkum ásamt kvennaflokkum, en suma flokka þurfti að sameina til að búa til betri keppni fyrir daginn.

Reykjavík Open er skemmtilegt mót og alveg örugglega eina mótið hérlendis þar sem ekki eru gefin stig meðan á glimrunni stendur. Ef viðureign klárast án þess að uppgjafartak náist þá er haldið í bráðabana.

Alls tóku 45 keppendur þátt á mótinu og var það -85 kg karlaflokkurinn sem var langfjölmennastur með 15 keppendum.

Röðun Úrslita

Sara Locatelli (Mjölnir) sigraði -2 ár 65kg KVK flokkinn

Daníel Egilsson (Mjölnir) sigraði -2 ár 70kg KK flokkinn

Samir Jónsson (Atlantic BJJ) sigraði -2 ár 85kg KK flokkinn

Stefán Fannar (Mjölnir) sigraði +2 ár 85kg KK flokkinn

Breki Harðarson (Mjölnir) sigraði +2 ár +85kg KK flokkinn

Úlfar Kári (VBC) sigraði +2 ár -70 kg KK flokkinn

Kolka Hjaltadóttir (VBC) sigraði +2 ár +65 kg KVK flokkinn. Kolka fékk einnig verðlaun fyrir submission mótsins!

Kolka Hjaltadóttir fékk sérstaka viðurkenningu fyrir submission mótsins.

Virkilega flott mót hjá Mjölni sem unnu 4 gull á deginum ásamt fleiri verðlaunum.

Streymi á völl A má finna hér fyrir neðan og seinni völlurinn kemur inn á Youtube von bráðar.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið