Ronald Bjarki Mánason og Nóel Freyr Ragnarsson, ásamt þjálfara sínum frá HR Davíði Rúnari Bjarnasyni, kepptu fyrir hönd Íslenska hnefaleikalandsliðsins á Norðurlandamótinu fyrr í dag. Mótið fór fram í Vantaa, Finnlandi, rétt fyrir utan Helsinki.
Nóel Freyr Ragnarsson byrjaði á Norðurlandamótinu þegar hann mætti Patrick Wreder frá Svíþjóð og kom tilbúinn til leiks en náði ekki að komast almennilega af stað og greinilegt að niðurskurðurinn hafði áhrif á hann.
Nóel gerði engu að síður virkilega vel á köflum og bardaginn heilt yfir frekar jafn en samt sem áður náði hann ekki að gera nóg til að fá dómarana með sér í lið og niðurstaðan einróma tap. Nóel á mikið inni og fer beint í að einbeita sér að næsta verkefni.

Það var síðan Ronald Bjarki Mánason sem keppti við Väinö Nore frà Finnlandi stal senunni algjörlega frá byrjun og það var aldrei vafi á hver væri að vinna alveg frá byrjun. Ronald gerði allt rétt, svaraði vel og stoppaði allar tilraunir Vänö til að snúa þessu við. Ronald náði fram talningu í síðustu lotu og niðurstaðan 5-0 frá öllum dómurum í öllum lotum og tveir dæmdu síðustu lotuna 10-8 sem þýðir yfirburða sigur.

Eftir bardagann var mikið umtal um þennan unga íslenska boxara og að frammistaða hans væri virkilega flott, Ronald er bara 17 ára og augljóst að hann hefur alla burði til að geta farið alla leið og þjálfarar annarra liða höfðu einnig orð á því.
Ronald Bjarki Mánason er því fyrsti íslenski karlkyns boxarinn til að ná í gull á Norðurlandamótinu fyrir Ísland í sögunni.
Bardaga Ronalds má finna í fylgjandi myndbandi en hann hefst á 02:16:30
Máni Hrafnsson, faðir Ronalds Bjarka, tók ljósmyndirnar sem fylgja fréttinni.






