Í 11. þætti Tappvarpsins fengum við Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur sem gest. Sunna samdi nýverið við Invicta bardagasamtökin og fengum við að vita aðeins meira um þennan samning.
Sunna varð Evrópumeistari áhugamanna í MMA í nóvember í fyrra. Hún mun nú stíga skrefið í atvinnumenskuna og tekur sinn fyrsta atvinnubardaga í Invicta bardagasamtökunum síðar á þessu ári.
Við biðjumst velvirðingar á suðinu sem heyrist stöku sinnum en hér má hlusta á þáttinn.