Erika Nótt Einarsdóttir, Norðurlandameistari og hnefaleikastjarna, sagði í nýlegu innslagi á samfélagsmiðlum að hún teldi bardagann sinn gegn Carla Jade ekki hafa verið svindl (e. rigged) og tilkynnti einnig að hún væri búin að skrifa undir nýjan samning hjá Misfits Boxing.
Eins og frægt er orðið þreytti Erika Nótt frumraun sína í Misfits Boxing laugardaginn 10. október. Erika mætti ríkjandi Misfits léttvigtarmeistara, Cörlu Jade, sem Erika fór ekki fögrum orðum um á blaðamannafundum og viðtölum fyrir bardagann og skapaðist mikill hiti fyrir viðureignina.
Bardaginn fékk mikla athygli og sýndi Erika Nótt að hún væri fullfær um að selja bardaga og að hún passaði sem flís við rass inn í Misfits-samtökin. Erika tapaði bardaganum á einróma dómaraúrskurði en það þótti ansi umdeild ákvörðun og lá internetið nánast á hliðinni eftir bardagann.
Fyrr í vikunni var tilkynnt um endurleik milli Eriku og Carle Jade á samfélagsmiðlum en það á eftir að fá endanlega staðfest hvort bardaginn verði. Miðað við fyrstu fréttir verður bardaginn um jólin og léttvigtarbeltið á línunni.
Orðrómurinn barst um netið á sama tíma og Erika Nótt tilkynnti að hún hefði skrifað undir fjöldabardagasamning við Misfits og megum við því eiga von á meiri toppskemmtun og dramatík frá samfélagsstjörnunni frægu.
Erika Nótt hefur einnig áréttað á samfélagsmiðlum að hún teldi bardagann sinn ekki hafa verið svindl eða að einhvers konar hagræðing hafi átt sér stað. Hún segir réttilega að dómarar og aðrir starfsmenn séu ráðnir frá óháðum aðilum til að dæma. Hún segir hins vegar dómaraákvörðunina hafa verið ranga og verður að segjast að það er fremur auðvelt að taka undir það.
Þó að frumraunin hafi ekki farið eins og við hefðum vonast er ljóst að Erika Nótt er rétt að hefja sitt hnefaleikaævintýri á nýjum vettvangi og mun eflaust skila okkur mikilli skemmtun og jafnvel, kannski, léttvigtarbelti í jólagjöf.






