HomeBoxVBC sótti tvenn gullverðlaun til Danmerkur

VBC sótti tvenn gullverðlaun til Danmerkur

HSK boxing cup fór fram í fertugasta og fyrsta skipti dagana 9.–11. október í Hillerød í Danmörku. Þar kepptu strákar frá bæði VBC í Kópavogi og Hnefaleikafélagi Hafnafjarðar. Stóðu þau helst upp úr tvenn gullverðlaun sem Ísak Guðnason og Yahya Ghazali fengu á mótinu eftir flotta keppni.

Til Danmerkur héldu Ísak Guðnason, Yaha Ghazali, Viktor Örn Sigurðsson og Símon Kristjánsson Sullca frá VCB. Frá HFH mættu Benedikt Gylfi og Ágúst Hrafn Heiðarsson ásamt Braga Eiríkssyni frá Hnefaleikafélagi Þórs á Akureyri.

Alls unnu Íslendingar til þrennra verðlauna á mótinu en eins og áður sagði voru það strákarnir frá VBC sem tóku að sér að bera verðlaunagripina heim.

Ísak Guðnason keppti í -75 kg Elite flokki og barðist tvo bardaga, í bæði skiptin við heimamann. Fyrst gegn Viktor Knudsen (EBBK Esbjerg) og svo að lokum við Mark Højfeldt (BK Vitus Horsens). Frammistaðan skilaði honum gullinu og kom hnefaleikamaður ársins 2025 eflaust sáttur heim eftir mótið.

Yaha Ghazali fór beint í úrslit en hann keppti í U19 75 kg flokknum. Yaha sigraði Bretann Cole Speed-Ramsey frá Trinity Boxing Academy og tryggði VBC önnur gullverðlaunin sín.

VBC menn voru þó ekki hættir því Viktor Örn, sem keppti í U19 -80 kg flokki, sótti silfrið í flokknum sínum. Hann mætti Englendingnum Luca Johnson í úrslitaviðureigninni en þurfti að sætta sig við tap.

Aðrir íslenskir keppendur fengu ekki sæti á palli en að sögn þjálfara var mjög mjótt á munum í mörgum viðureignum.

Fjallað var um afrek Yaha í Sýrlensku sjónvarpi um helgina.

https://www.facebook.com/share/v/1DukMai8fW/?mibextid=wwXIfr
spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið