UFC 203 fer fram á laugardaginn í Cleveland. Þungavigtarmeistarinn Stipe Miocic mun verja beltið sitt en í nýjustu Embedded þáttunum má sjá hann skellihlæja af eigin bröndurum.
Stipe Miocic finnst hann greinilega vera mjög fyndinn. Í fyrsta þættinum í Embedded seríunni skemmtir hann sér við að skella á vin sinn og eiginkonu sína í miðri setningu. Það þarf greinilega ekki mikið til að skemmta heimsmeistaranum.
Í öðrum þættinum heldur hann uppi sama húmor þegar hann er dómari á bílasýningu.