UFC gefur eina milljón dollara til aðstandenda fórnarlamba skotárásarinnar á sunnudaginn í Las Vegas. UFC hefur lengi haft höfuðstöðvar sínar í Las Vegas.
UFC president Dana White tells me the organization will donate $1 million to the families of those affected by the tragedy in Las Vegas
— Adam Hill (@AdamHillLVRJ) October 2, 2017
Meira en 50 manns eru látnir og yfir 500 manns særðir eftir skelfilega skotárás á sunnudagskvöldið í Las Vegas. Árásarmaðurinn Steðhen Paddock skaut á gesti sveitatónlistarhátíðar frá hótelglugga sínum á Mandalay Bay. UFC hefur margoft haldið viðburði á hótelinu.
UFC 216 fer fram á laugardaginn í Las Vegas og mun viðburðurinn fara fram eins og áætlað var.