Thursday, March 28, 2024
HomeErlentUFC Rotterdam: Madadi og Emmett með sigra

UFC Rotterdam: Madadi og Emmett með sigra

Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

UFC bardagakvöldið í Rotterdam heldur áfram og var tveimur áhugaverðum bardögum að ljúka.

Léttvigt: Reza Madadi gegn Yan Cabral

Fyrstu tvær loturnar voru nokkuð jafnar og náði þeir hvor um sig fellu. Cabral var með góða fellu í 1. lotu og náði bakinu á Madadi en Svíinn slapp. Cabral er með 11 sigra eftir uppgjafartök og var Madadi eflaust glaður að hafa sloppið úr þessari stöðu.

Í 2. lotu fengum við mikið af því sama en Madadi náði fellu. Madadi vildi þó ekki vera lengi í „guardinu“ hjá  Cabral og stóð upp. Í 3. lotu náði Madadi hörku upphöggi og fylgdi eftir með beinni hægri. Cabral var augljóslega mjög vankaður og fylgdi Madadi höggunum eftir með fléttu og kláraði Cabral eftir 1:56 í 3. lotu. Flottur sigur hjá Madadi sem þurfti nauðsynlega á þessu að halda.

Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

Léttvigt: Jon Tuck gegn Josh Emmett

Josh Emmett kom inn í þennan bardaga bara með nokkura daga fyrirvara. Hann átti að berjast annars staðar í gær en fékk kallið frá UFC þegar Nick Hein, upphaflegi andstæðingur Jon Tuck, meiddist. Emmett útboxaði Tuck í tvær lotur og átti Tuck engin svör. Í rauninni gerði Tuck ekkert fyrr en 30 sekúndur voru eftir af 3. lotunni og sparkaði hann ítrekað í Emmett. Það hafði augljóslega áhrif á Emmett en þetta var of lítið og of seint.

Emmett átti í miklum vandræðum með höndina á sér í lok bardagans og sagði hann í viðtalinu eftir bardagann að bein stæði úr einum af fingrum hans. Flestir töldu þetta öruggan sigur Emmett enda gerði Tuck ekkert nema í þriðju lotu. Af einhverjum ástæðum taldi einn dómarann að Tuck hefði unnið eina lotu og var þetta því sigur eftir klofna dómaraákvörðun.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular