spot_img
Thursday, February 5, 2026
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeErlentZhang Weili upp um þyngdarflokk

Zhang Weili upp um þyngdarflokk

Kínverska stjarnan og UFC meistarinn Zhang Weili hefur ákveðið að færa sig upp um þyngdarflokk og berjast í fluguvigt. Hún lagði strávigtarbeltið frá sér í vikunni og mun mæta Valentina Shevchenko í titilbardaga á UFC 322 í Madison Square Garden í nóvember.

Weili hefur verið ein besta bardagakona UFC síðustu ár og vann strávigtarbeltið tvisvar sinnum. Hún varði það síðast í sumar með sannfærandi sigri á Tatiana Suárez og virtist áfram óstöðvandi í flokknum. Nú tekur hún hins vegar næsta skref í ferlinum. Ákvörðunin kemur eftir að hún hefur lengi átt erfitt með að ná niður í 115 pund. Með flutningi upp í 125 pund fær hún tækifæri til að sækjast eftir öðru belti og gæti orðið meistari í tveimur þyngdarflokkum.

Valentina Shevchenko verður þó gríðarlega erfiður andstæðingur. Hún hefur verið ein af bestu bardagakonum UFC í meira en áratug og á eftir að gera allt til að verja beltið sitt. Sumir sérfræðingar efast um að Weili nái sama árangri í nýjum flokki og í strávigtinni, en aðrir telja hana nógu hraða og tæknilega til að geta sigrað Shevchenko. Ljóst er að þessi titilbardagi á UFC 322 mun verða einn af hápunktum ársins þegar tvær stærstu kvenkyns UFC stjörnurnar mætast í búrinu.

Það er nú ljóst að Virna Jandiroba og Mackenzie Dern munu mætast um lausa strávigtartitilinn. Þær hafa áður mæst árið 2020 en þá hafði Mackenzie Dern betur. Endurleikurinn fyrir strávigtarbeltið fer fram 25. október í Abu Dhabi og lofar spennandi titilbardaga þar sem báðar eru þekktar fyrir góða glímu.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið